Fæ ég einn!

Nú eru ár og aldir síðan ég skrifaði síðast. Margt hefur breyst hjá mér. Í febrúar á þessu ári sótti ég um að fá blindrahund. Í framhaldi af því fékk ég að vita að umsókn mín væri móttekin og ég hæf sem umsækjandi. Í endaP5310315 maí fór ég ásamt 5 öðrum til Noregs til að sækja námskeið og próf um hæfni til að fá hundinn. Það eru búið að samþykkja af ríkinu að fá 5 hunda til landsins. Jæja, en að loknu prófi og félagsskap var farið heim til íslands og beðið eftir niðurstöðum hvort maður sé í fyrsta hollinu að fá hund.

Með þolinmæði og þrautseigju var komið að svarinu. Þann 13 júní var hringt og mér tjáð að ég væri hæfur umsækjandi og hvort ég vildi þykkja hund eða bíða. Ég varð orðlaus því ég átti ekki von á að fá hund í fyrsta hollinu. Auðvita þáði ég að fá hundin. Wink

í fyrsta holli mun eingöngu koma 4 hundar.


Ljós í myrkrinu

Nú er sá tími árs er dimmastur er. Þó að það fari að birta á ný. Það eina sem vantar nú er snjórinn til að birta til þó að hann sé til trafala. Maður spennir sig allan upp þegar dimmt er orðið í þeirri von að rekast ekki menn og mýs, eða falla um holu sem blindrastafurinn hefur að öllum líkindum ljáðst að aðvara mig um. Reynslan hefur sýnt það að maður verður að treysta á sjálfan sig til að komast áfram. Cool


Fyrsta bloggfærsla

Ég við með síðu minni reyna að koma með upplýsingar og miðlun til RP-inga og aðstandendur þeirra.Brosandi


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband